
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tilögur að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Hvammsvirkjun. Breyting vegna stækkunar efnistökusvæðis.
Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir efnistökusvæði vegna Hvammsvirkjunar. Ýmsar hönnunarforsendur hafa breyst og við endanlega verkhönnun hefur komið í ljós að efnisþörf er nokkuð meiri en reiknað var með í upphafi, einkum vegna mikilla fyllinga í tengslum við nýjan Þjórsárdalsveg. Til að mæta þessari viðbótarefnisþörf hyggst Landsvirkjun óska eftir stækkun á núverandi efnistökusvæði í Hvammslóni í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og innan Rangárþings ytra. Núverandi heimildir í skipulagi heimila að tekið sé allt að 950.000 m3 af efni, þar af 500.000 m3 í efnistökusvæði E26 sem er í lónstæði Hvammsvirkjunar og mun svæðið fara undir vatn að framkvæmdum loknum. Í heild verður viðbótarefnismagn 350.000 m3 innan beggja sveitarfélaga. Öll fyrirhuguð viðbótarsvæði verða einnig í lónsstæðinu og hverfa því í lónið að framkvæmdum loknum. Samanlögð stærð allra svæðanna er um 25 ha, en efnistakan er hins vegar öll innan framkvæmdasvæðis og lónsstæðis Hvammsvirkjunar, á svæði sem er búið að heimila að raska nú þegar.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Vaðfitjanáma. Nýtt efnistökusvæði í aðalskipulagi.
Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem nýtt efnistökusvæði fyrir efnistöku allt að 80.000 m³ verði skilgreint í aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar efnistöku á Vaðfitjum við Þjórsá.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Vinnslutillögurnar eru til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is og að auki í www.skipulagsgatt.is
Kynningu lýkur þriðjudaginn 13. maí nk klukkan 15.00
Vilji hagsmunaaðilar senda inn ábendingar á þessu stigi er það heimilt en formlegur frestur til athugasemda verður þó gefinn þegar tillagan hefur verið samþykkt til auglýsingar síðar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra