Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022.

Hella, Rangárþingi ytra, Svæði sunnan Suðurlandsvegar

Sveitarfélagið vinnur að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til breyttrar landnotkunar á Hellu. Athafnasvæðinu A5 og iðnaðarsvæðinu I3 verður breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Gert er ráð fyrir að hluta opins svæðis til sérstakra nota (O7) verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði með starfsemi tengdri ferðamennsku og þjónustu við ferðamenn ásamt því að nýtast íbúum. Áfram verður gert ráð fyrir mögulegum léttum hreinlegum iðnaði og annarri athafnastarfsemi í bland við verslunar- og þjónustusvæði, sérstaklega fjær Suðurlandsvegi. Samhliða breytist gatnakerfi, göngu- og reiðleiðir.

Tillöguna má nálgast hér

Ofantaldar tillögur ásamt eru til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Kynningu lýkur föstudaginn 6. maí, klukkan 15.00

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?