Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

Lækjarbotnar breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 28. janúar 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Lækjarbotna 2, um 42 ha land. Ætlunin er að byggja íbúðarhús ásamt gestahúsi, hesthúsi og skemmu, samtals um 910 m². Aðkoma að svæðinu er af Landvegi 26.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Brinmes, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 28. janúar 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Brimnes sem skipt var úr landi Hákots L165388. Ráðgert er að byggt verði íbúðarhús, gestahús og skemma / geymsla. Aðkoma að svæðinu er suður af Háfsvegi (2995).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Leynir 2, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 28. janúar 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Leyni 2. Nýtt deiliskipulag nær yfir um 4 ha af landi Leynis 2 en Leynir 2 er skráð 25 ha að stærð skv. fasteignaskrá HMS. Gert er ráð fyrir aðstöðu starfsmanna í þjónustuhúsi og gistingu í minni gestahúsum (kúluhúsum) fyrir allt að 60 gesti, skv. flokki II. Þá verður áfram heimilt að reka tjaldsvæði. Eldra deiliskipulag verður fellt úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Aðkoma að Leyni 2 er af Landvegi 26.

Skipulagsgögn má nálgast hér

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. mars 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra