Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.
Ægissíða 4 land. Breyting í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 25.3.2026 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr iðnaðarsvæði í verslunar- og þjónustulóð. Aðkoma að lóðinni er af Suðurlandsvegi (1).
Lýsingu skipulagsáforma má nálgast hér.
Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 16. apríl nk.
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra