Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Þjóðólfshagi 1. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.1.2026 tillögu til auglýsingar að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Breytingin nær til hluta úr jörðinni Þjóðólfshaga 1 þar sem áform eru uppi um rekstur gistiþjónustu í gistiskálum fyrir allt að 60 manns. Breyting á landnotkun verður úr landbúnanaðarnotum í Verslun- og þjónustu.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 13. maí 2026

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Har. Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra