Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.

 

Ægissíða 4 land. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem lóðin Ægissíða 4 land yrði skilgreint fyrir Verslun- og þjónustu í stað iðnaðarsvæðis. Heimild yrði til veitinga- og annars reksturs innan lóðarinnar. Gert er ráð fyrir óbreyttri aðkomu inná lóðina af Suðurlandsvegi.

Skipulagstillögu má nálgast hér. 

Vinnslutillagan er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is og að auki í www.skipulagsgatt.is

Kynningu lýkur þriðjudaginn 28. apríl nk klukkan 15.00

Vilji hagsmunaaðilar senda inn ábendingar á þessu stigi er það heimilt en formlegur frestur til athugasemda verður þó gefinn þegar tillagan hefur verið samþykkt til auglýsingar síðar.

 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra