Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Oddpsartur, breyting á landnotkun lóðar í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Breytingin fellst í að skýra betur breytingu aðalskipulags sem unnin var og samþykkt 10 júní 2025. Heildar byggingarmagn er aukið úr 1000 m2 í 1700 m2 auk þess sem skilmálum um dreifbýlisyfirbragð eru felldir út. Gerð er breyting á deiliskipulagi samhliða aðalskipulagsbreytingu. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 27.5.2026.
Breytingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Har. Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra