Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Landmannahellir, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 24.6.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Landmannahelli. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar. Aðkoma að svæðinu er af Landvegi 26 og Landmannaleið F225.
Greinargerð má nálgast hér.
Uppdrátt má nálgast hér.
Tillagan liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. ágúst 2026.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra