Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Útskálar 1 á Hellu, breyting á landnotkun lóðar í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Um er að ræða breytingu á landnotkun þar sem núverandi landnotkun samfélagsþjónustu verður að íbúðabyggð að nýju. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 15.7.2026.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Sigölduvirkjun, breyting á landnotkun lóðar í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Um er að ræða efnistökusvæðið E72 sem færist frá núverandi stað og suður fyrir Sigöldugljúfur, á þegar raskað svæði. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 15.7.2026.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Breytingarnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 21, Reykjavík og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is undir málum nr. 884/2026 og 885/2026.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Ægissíða 2, Rangárstígur 9, breyting á deiliskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.7.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Ægissíðu 2. Lóð Rangárstígs 9 stækkar um 6374 m2 og er ný mæld stærð lóðar 12.143 m2. Skipulagssvæðið er stækkað sem um nemur lóð Rangárstígs 9 og er ný stærð svæðis 2,5 ha. Byggingarreitur er stækkaður til austurs og norðurs. Árbakki er aðlagaður í samræmi við fjarkönnunargögn. Hnitkrossum er bætt við á uppdrátt. Að undanskildum þeim breytingum sem fjallað er um hér gilda ákvæði í gildandi skipulagi. Aðkoma að svæðinu er af Þykkvabæjarvegi.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Hellarnir við Hellu, breyting á deiliskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.7.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir starfsemi Hellanna á Ægissíðu 4. Afmarka á tvær nýjar lóðir; annars vegar lóð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og hins vegar lóð fyrir geymslusvæði sem tengist atvinnustarfsemi á svæðinu. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi, þjóðvegi nr. 1.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. september 2026.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Har. Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra