Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

 

Oddspartur, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Oddspart Loka í Þykkvabæ, dags. 19.9.2025. Um er að ræða breytingar á legu vegar innan svæðis, aukning á fjölda bygginga og tilfærsla á byggingarreit. Aðkoma að svæðinu er af Ásvegi.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. september 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra