Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.
Minni-Vellir. Aðkomuvegur frá Landvegi að Stóru-Völlum. Breyting í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.8.2026 að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem fyrirhuguð vegtenging af Landvegi gegnum land Minni-Valla að Stóru-Völlum verði skilgreind.
Markmið breytingarinnar er að tryggja aðgengi að Stóru-Völlum í samræmi við fyrirliggjandi dómsátt um veginn og aðkomu að svæðinu. Í aðalskipulagi eru héraðsvegir og aðrir vegir almennt sýndir til skýringar og verður umrædd vegtenging færð inn með þeim hætti með breytingunni.
Lýsingu skipulagsáforma má nálgast hér.
Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 27.ágúst nk.
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra