Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

 

Snjallsteinshöfði 1C, deiliskipulag (Endurauglýsing).

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.8.2026 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir úr Snjallsteinshöfða 1C. Um er að ræða lóðirnar Ásholt, Ytrivöllur og Stekkatún. Gert verði ráð fyrir þremur byggingareitum á hverri lóð fyrir íbúðarhús, geymslu og gestahúsum. Aðkoman er sameiginleg frá Árbæjarvegi.

Hér er um endurauglýsingu að ræða sökum tímaákvæðis í skipulagslögum.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Skýringaruppdrátt má nálgast hér. 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 14. október 2026

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra