Auglýsing um skipulagsmál í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst sameiginlega tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun
Eftirfarandi eru helstu breytingar sem gerðar eru á deiliskipulaginu:
- Nákvæm afmörkun Hagalóns liggur fyrir og er því breytt lítillega, stærð lóns þó lítt breytt.
- Efnislosunarsvæði við Ölmóðsey minnkar og vegur þangað breytist vegna minja.
- Legu Þjórsárdalsvegar er breytt ásamt reiðleið með honum, heimiluð eru undirgöng undir veginn.
- Settur er inn áningarstaður við Hagalón. Heimilaður er annar tímabundinn áningarstaður á framkvæmda tíma.
- Legu vega innan svæðis er breytt lítillega og einhverjir vegir breytast úr vinnuvegi í varanlegan veg. Bætt er inn vegi að tengivirki.
- Reiðvegir um svæðið breytast.
- Legu háspennulína og rafstrengja er breytt lítillega. Á uppdrætti er felld út tímabundin færsla háspennu línu en færslan áfram heimil á framkvæmdatíma.
- Vatnstankur færist inn fyrir lóðamörk.
- Legu nokkurra vinnuvega er breytt lítillega.
- Sveitarfélagamörk eru leiðrétt til samræmis við breytingu í aðalskipulagi.
- Afmarkaðar eru lóðir og byggingarreitir fyrir stíflur.
- Lóð stöðvarhúss/stíflu er stækkuð að sveitarfélagamörkum í Þjórsá. Að öðru leyti en því sem kemur fram hér að aftan gilda skilmálar eldra deiliskipulags.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þann 12.8.2026 og á fundi Skeiða- og Gnúpverjahrepps þann 5. ágúst 2026.
Greinargerð skipulagsins má nálgast hér.
Uppdrátt skipulagsins má nálgast hér.
Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúum beggja sveitarfélaga, á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. og á heimasíðu umhverfis- og tæknisviðs uppsveita, www.utu.is
Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 21. október 2026
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is eða skipulagsfulltrúa UTU í síma 480-5550 eða með tölvupósti sigridur@utu.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi UTU