Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

 

Grásteinn, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9.9.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Grástein, dags. 30.6.2020. Afmarkaðar eru tvær nýjar lóðir, Túnbrekka og Sólbarð, og settir byggingarskilmálar fyrir þær. Á hvorri lóð er heimilt að byggja íbúðarhús með bílskúr, gestahús og skemmu, samtals allt að 1200 m². Byggingareitur B4 er felldur út. Aðkoma að svæðinu er af Árbæjarvegi (271).

Greinargerð má nálgast hér

Uppdrátt má nálgast hér

 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. október 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra