Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Öldur II. Breyting í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.11.2026 að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem fyrirhuguð breyting snýr að húsagerðum og fjölda íbúða/ha í íbúðarbyggð í þéttbýlinu á Hellu. Íbúðarbyggð á Hellu samanstendur nánast eingöngu af einbýlis-, par-og raðhúsum en eftirspurn er eftir minni íbúðum í fjölbýlishúsum. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggð á Hellu og fyrir íbúðarbyggðina ÍB23 Öldur.

Nálgast má lýsingu skipulagsáforma hér. 

Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 11. desember nk.

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra