Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra - Lunansholt II

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022.

1306054 – Lunansholt II, Rangárþingi ytra

Sveitastjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á landnotkun í aðalskipulagi.  Gert er ráð fyrir tveimur frístundasvæðum í landi Lunansholts II í Holtum. Samtals verður allt að 13 ha svæði tekið undir frístundabyggð austan Landvegar. Gert er ráð fyrir allt að 20 frístundahúsum á svæðinu.

Ofantalin tillaga er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og hér á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is.

Kynningu lýkur föstudaginn 16. ágúst klukkan 15.00

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?