Fjallabakssvæðið norðan Mýrdalsjökuls - Lýsing vegna rammaskipulags

Sveitarfélögin Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Skaftárhreppur hafa skipað vinnuhóp til að vinna að sameiginlegri stefnumörkun í sviði samgangna og ferðaþjónustu á hálendissvæðum sveitarfélaganna. Steinsholt sf. vinnur með stýrihópnum sem skipulagsráðgjafi verkefnisins.

Lýsing fyrir verkefnið liggur fyrir og þar kemur m.a. fram afmörkun svæðis, markmið verkefnis og verklýsing og má nálgast hana á heimasíðum sveitarfélaganna. Lýsinguna má nálgast hér.

Málstofa  þar sem verkefnið verður kynnt frekar, verður á Hvolsvelli 27. feb. og verður auglýst nánar síðar.

Allir íbúar, áhugafólk og hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér verkefnið og koma ábendingum og tillögum til skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna eða til ráðgjafa Steinsholts. sf.

  • Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra – Haraldur Birgir Haraldsson
  • Skipulagsfulltrúi Skaftárhrepps og Rangárþings eystra – Anton Kári Halldórsson
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?