Það er Þjótandi sem undirbýr svæðið.
Það er Þjótandi sem undirbýr svæðið.

Nú í vikunni hófust framkvæmdir í nýju hesthúsahverfi á Hellu á Rangárbökkum og er gert ráð fyrir að þeir sem nú þegar hafi fengið úthlutaða lóð geti hafið framkvæmdir í sumar. Það er Þjótandi sem sér um að undirbúa svæðið til uppbyggingar.

Gert er ráð fyrir allt að 16 húsum í þessu nýja hverfi og eru aðeins 3 lóðir lausar. Sjá má lausar lóðir með því að fara inn á kortasjá sveitarfélagsins og haka í "lausar lóðir". Kortasjá má nálgast hér. 

Hér má nálgast deiliskipulag fyrir nýtt hverfi á Rangárbökkum.

Fyrirspurnir um lausar lóðir sendist á ry@ry.is

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?