Hugsanleg loftmengun sunnan heiða

Tilkynning til íbúa í Rangárvallasýslu frá

Almannavarnanefnd Rangárvalla-og Vestur-Skaftafellssýslu

Hætta er á SO2  gosmengun í uppsveitum Suðurlands (brennisteinstvíildi, brennisteinsdíoxíð) vegna eldgossins við norðanverðan Vatnajökul.

Þessi mengun er háð styrk gosmengunarinnar hverju sinni, vindátt og vindstyrk og getur verið varasöm, ef hún nær að mynda bláa eða grábláa móðu. SO2getur m.a. valdið ertingu í öndunarfærum og augum.

Sem stendur er loftgæðamælir í Þjórsárdal. Til stendur að setja upp mæla í Vík og á Kirkjubæjarklaustri.

Íbúar eru hvattir til að fylgjast með aðstæðum utandyra, fréttum og upplýsingaveitum á netinu. Ráðlögð viðbrögð við SO2gosmengun:

  • Börn og fólk sem er viðkvæmt fyrir, ætti að halda sig innandyra með lokaða glugga, hækka í ofnum og slökkva á loftræstingu þar sem það á við.
  • Heilbrigt fólk ætti ekki að vera í líkamlegri áreynslu utandyra.
  • Hafa tiltæk lyf sem tekin eru að staðaldri við hjarta- eða lungnasjúkdómum.
  • Áhrif SO2gosmengunar eru svipuð á dýr og menn.

Helstu upplýsingveitur:

almannavarnir.is– sjá m.a. leiðbeiningar um mengun og öskufall

vedur.is– viðvaranir ef spár gefa til kynna háan SO2-styrk frá eldgosinu

loftgaedi.is- loftgæðamælingar í rauntíma á tiltækum mælum

ust.is- upplýsingasíða og ráðlögð viðbrögð við SO2gosmengun

landlaeknir.is– tilkynningar vegna brennisteinsdíoxíðs (SO2) á Austurlandi

mast.is– upplýsingar um áhrif gosmengunar á dýr

www.hvolsvollur.is  

www.ry.is

www.asahreppur.is

www.klaustur.is

www.vik.is

 

Fylgjast má með mengun frá eldgosinu á vef Umhverfisstofnunar                                                               ásamt leiðbeiningum um viðbrögð (www.ust.is)

Áhrif á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð við SO2frá eldgosum

Magn SO2*

Lýsingar á loftgæðum

Ráðleggingar um aðgerðir

μg/m3

Einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma **

Heilbrigðir einstaklingar

 

Góð

   

0-300

Yfirleitt engin áhrif á heilsufar.

Getur fundið fyrir áhrifum

Engin áhrif á heilsufar

 

Viðunandi

   

300- 600

Getur valdið óþægindum í öndunarfærum hjá einstaklingum með undirliggjandi sjúkdóma.

Farið með gát, fylgist með mælingum.

Áhrif á heilsufar ólíkleg.

 

Varasöm

   

600-3.000

Einkenni frá öndunarfærum líkleg hjá einstaklingum með undir-liggjandi öndunarfærasjúkdóma. Lítil vandamál hjá heilbrigðum.

Forðist áreynslu utandyra.

Áhrif á heilsufar ólíkleg en gagnlegt að draga úr áreynslu utandyra.

 

Óhollt

   

3.000-9.000

Einkenni frá öndunarfærum líkleg hjá öllum einstaklingum, einkum einstaklingum með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma.

Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu.

Forðist áreynslu utandyra. Þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra, loki gluggum og slökkvi á loftræstingu.

 

Mjög óhollt

   

9.000-14.000

Allir líklegir til að finna fyrir miðlungs- eða alvarlegum einkennum frá öndunarfærum.

Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.

Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.

 

Hættuástand

   

>14.000

Alvarleg einkenni frá öndunarfærum líkleg.

Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.

Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræst-ingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda.

Höf: Sóttvarnalæknir, Umhverfisstofnun og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

 

*Meðalgildi í 15 mínútur
**Börn og fullorðnir með astma, berkjubólgu, lungnaþembu og hjartasjúkdóma.                                                                                                                                 

 

Almennar ráðleggingar:

  • Andið sem mest með nefi
  • Dveljið innandyra og lokið gluggum
  • Slökkvið á loftræstingu ef móða er áberandi í umhverfinu
  • Lungna- og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?