Hunda- og kattaeigendur í þéttbýli A.T.H.

Af gefnu tilefni er þeim tilmælum hér með beint til eigenda hunda og katta, að í gildi er samþykkt nr. 632/2012 um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra.

Eigendur/umráðamenn eru hvattir til að kynna sér vel efni samþykktarinnar sem er aðgengileg á heimasíðu Rangárþings ytra www.ry.is og fara í einu og öllu að ákvæðum hennar svo forðast megi óþægindi og kostnað sem leiðir af brotum.

Hvað varðar hunda er sérstaklega minnt á eftirfarandi í 2 gr.: 

f) Hundurinn skal merktur, ávallt bera ól um hálsinn. Á ólinni skal vera plata, sem í er grafið
skráningarnúmer hundsins.

g) Óheimilt er með öllu að láta hund ganga lausan innan marka þéttbýlis og á beitilöndum búfjár
nema nytjahund þegar hann er að störfum í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundur skal
annars ávallt vera í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir honum. Þegar
hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum
hússins. Hundeiganda er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.

h) Leyfishafa ber að sjá svo um að hundur hans valdi ekki hættu, óþægindum eða óþrifnaði eða
raski ró manna.

Hér má nálgast samþykktirnar í heild sinni. 

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar fara með eftirlit og framkvæmd samþykktarinnar sbr. III kafla 15. gr. og er skylt að bregðast við öllum kvörtunum sem berast um óskráða hunda og ketti og lausagöngu þeirra. Skráning dýra fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins.

Búast má við hertum aðgerðum í kjölfar þessarar tilkynningar vegna síendurtekinna kvartana sem berast Þjónustumiðstöð.

Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra,
Tómas Haukur Tómasson

Samþykktina má nálgast í heild sinni hér.

Gjaldskrá má nálgast hér.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?