Sorpeyðingargjald er lagt á öll íbúðarhús, sumarhús og atvinnuhúsnæði, óháð sorphirðu. Gjaldið er 31.600 kr. árið 2026.
Innifalið í sorpeyðingargjaldi er klippikort fyrir losun á 5 m3 af gjaldskyldum úrgangi á ári á móttökustöðinni á Strönd. Klippikortin er hægt að nálgast á skrifstofum sveitarfélaganna og á Strönd.
Sorphirðugjald er lagt á íbúa sem fá sorphirðu. Sorphirða er einungis í boði fyrir íbúðarhús. Gjaldið er 29.400 kr. árið 2026, grunngjald sem samanstendur af 3 sorpílátum fyrir blandaðan heimilisúrgang, heimilisplast og blandaðan pappír/pappa, ásamt brúnu íláti fyrir lífrænan heimilisúrgang. Hægt er fá aukaílát og stærri gegn gjaldi.
Á grenndarstöðvum er hægt að losa flokkaðan heimilisúrgang, þ.e. blandaðan heimilisúrgang, heimilisplast, blandaðan pappír/pappa, lífrænan heimilisúrgang, glerumbúðir, málmumbúðir og textíl. Annan úrgang og fyrirtækjaúrgang skal koma með á Strönd. Grenndarstöðvar eru á Hellu, Hvolsvelli og við Landvegamót