Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar vinnslutillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Norður Nýibær. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2025 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 vegna Norður Nýjabæjar þar sem núverandi landbúnaðarsvæði verði breytt í íbúðasvæði. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að stærð íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis á sérlóð. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Þjóðólfshagi 1. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2025 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 vegna Þjóðólfshaga 1 þar sem núverandi landbúnaðarsvæði verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Gert verði ráð fyrir rekstri gistiþjónustu í gistiskálum fyrir allt að 40 manns.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Vinnslutillögurnar eru til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is og að auki í www.skipulagsgatt.is
Kynningu lýkur miðvikudaginn 13. janúar nk klukkan 15.00
Vakin er athygli á að vilji hagsmunaaðilar senda inn ábendingar á þessu stigi er það heimilt en formlegur frestur til athugasemda verður þó gefinn þegar tillagan hefur verið samþykkt til auglýsingar síðar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra