Rangárþing ytra óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og kynningarfulltrúa.
Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðrar færni á ýmsum sviðum, m.a. í tengslum við umsjón viðburða, kynningarmál og ritstjórn heimasíðu sveitarfélagsins.
Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á og umsjón með markaðs-, upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins
- Verkefnastjórnun og umsjón með framkvæmd viðburða, s.s. Töðugjöld, 17. júní á Hellu og árshátíð sveitarfélagsins
- Umsjón með vef- og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins
- Þátttaka í markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd og öðrum nefndum eftir atvikum
- Samskipti við ýmsa hagsmunaaðila
- Önnur tilfallandi sérverkefni, s.s. á sviði ferðamála, stefnumótunar og skýrslugerðar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Menntun og/eða reynsla á sviði viðburða- og verkefnastjórnunar er kostur
- Þekking á svæðinu og nærsamfélaginu er skilyrði
- Reynsla af umsjón vefsvæða er skilyrði
- Þekking eða reynsla af framsetningu kynningarefnis er kostur
- Þekking og reynsla af sjórnsýslu sveitarfélaga er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Hjá Rangárþingi ytra starfa um 150 manns hjá hinum ýmsu stofnunum en skrifstofa sveitarfélagsins er staðsett á Hellu.
Nánari upplýsingar um Rangárþing ytra má finna á www.ry.is.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.