Menningarsjóður - opið fyrir umsóknir

Rangárþing ytra auglýsir eftir umsóknum í fyrri úthlutun menningarsjóðs sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 30. apríl og úthlutað verður í júní 2024.

Til úthlutunar í fyrri úthlutun ársins eru allt að 250.000 kr. 

Umsækjendur geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í Rangárþingi ytra. Verkefni sem styrkt eru verða að fara fram innan sveitarfélagsins. Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd metur hvaða verkefni eru styrkhæf.

Með umsókninni skal fylgja lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, fjárhagsáætlun og upplýsingum um viðkomandi umsóknaraðila.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur umsókna styrkja úr Menningarsjóði Rangárþings ytra. 

Umsóknareyðublöð og reglur um úthlutun má nálgast hér fyrir neðan.

Sækja um

Fyrirspurnir vegna menningarsjóðs sendist á markaðs- og kynningafulltrúa, Ösp Viðarsdóttur, á netfangið osp@ry.is eða í s: 4887000.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?