Mikil eftirvænting hefur verið fyrir því að taka 2. áfanga nýbyggingar Helluskóla í notkun. Í morgun varð það að veruleika þegar nemendur á tveimur elstu deildum Heklukots örkuðu á milli bygginga og fluttu inn í nýja húsið.
Skólinn mun hýsa tvær leikskóladeildir á meðan nýi leikskólinn verður byggður og auk leikskóladeilda er búið að taka eldhúsið og matsalinn í notkun. Restin af húsinu verður fullkláruð í sumar og tekin í notkun á nýju skólaári í haust.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá flutningunum og af nýja húsinu og bráðabirgðagarði fyrir leikskóladeildirnar tvær.
Við viljum svo minna á að opið hús verður í nýbyggingu skólans á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, frá kl. 16-17.
Smellið hér til að lesa nánar um dagskrá sumardagsins fyrsta.
Krakkarnir gengu prúð í röð með kennurunum sínum á milli bygginga. Hér leiðir Árný Gestsdóttir þau inn um nýtt hlið við nýju bygginguna.

Garðurinn strax vel nýttur til útiveru

Spennandi að prófa nýju leiktækin

Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri og Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri tylltu sér í leiksófa barnanna og tóku út húsnæðið
