Opið fyrir umsóknir í vinnuskólann í sumar

Opið er fyrir unglinga fædda 2006 - 2009 til skráningar í vinnuskóla Rangárþings ytra fyrir sumarið 2022 til 25 maí n.k.. Starfstími vinnuskólans er frá 1. júní til 29. júlí. Vinnutími er frá kl. 9:00 – 16:00 mánudag til fimmtudaga og 09:00-12:00 á föstudögum.

Unglingar fæddir 2009 vinna ýmist frá 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00.

Umsóknareyðublöð eru hèr á heimasíðu Rangárþings ytra og mega einnig berast á netfangið vinnuskoli@ry.is

Fundað verður með umsækjendum og foreldrum þeirra í Námsverinu í Miðjunni mánudaginn 30. maí kl.:18:00. Á fundinum verður farið yfir starfið, skyldur og réttindi ungmenna. Æskilegt er að allir mæti.

Reglur vinnuskólans má nálgast hér. 

Tómas Haukur Tómasson
Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?