Unglingum sem áhuga hafa á því að starfa við vinnuskólann á komandi sumri, er hér með bent á að senda inn umsókn á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má hér eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Suðurlandsvegi 1.

Umsókn um starf í Vinnuskóla

 

Reglur vinnuskóla Rangárþings Ytra 2023

Vinna, vinnutími og stundvísi

1. Starfsmönnum vinnuskólans ber að fara eftir fyrirmælum verkstjóra og flokkstjóra á vinnutíma. Verkstjórum og flokkstjórum ber að gæta þess að verkefni sem unnin eru á vegum vinnuskólans samræmist aldri starfsmanna vinnuskólans og að öryggi þeirra sé gætt, sbr. reglugerð um vinnu barna og unglinga nr. 426/1999.

2. Verkstjóri/ flokkstjórar leiðbeina starfsmönnum vinnuskólans um vinnubrögð, meðferð og umhirðu verkfæra ásamt umgengni og eru ábyrgir fyrir því að góðri reglu sé viðhaldið á öllum sviðum. Verkstjóri/ flokkstjórar brýna fyrir starfsmönnum vinnuskólans vinnusemi, heiðarleika og stundvísi.

3. Vinnuskólinn hefst að morgni 5. júní 2023 og síðasti vinnudagur barna vinnuskólans er 31. Júlí 2023. Síðasti vinnudagur hjá börnum sem eru fædd 2010 er 7. júlí 2023.

4. Vinnutími barna og unglinga í vinnuskólanum er frá kl. 8:00 - 15:00 mánudaga - fimmtudaga og frá kl. 8:00 – 12:00 á föstudögum á því tímabili sem vinnuskólinn er starfræktur. Vinnutími barna sem fædd eru 2007 er frá kl. 8:00 - 12:00.

5. Kaffitími er frá kl. 9:40 – 10:00 og eftir hádegi frá kl. 14:00-14:10. Hádegishlé er frá klukkan 12:00 – 13:00.

6. Foreldrar/ forráðamenn skulu tilkynna veikindi barna sinna í síma 786-0793.

7. Öllum starfsmönnum vinnuskólans ber að mæta stundvíslega á uppgefnum mætingartímum.

Klæðnaður og reglusemi

1. Starfsmenn vinnuskólans verða ávallt að vera klæddir í samræmi við veður og vinnuskilyrði hverju sinni. Vinnuskólinn leggur einungis til endurskinsvesti. Þann fatnað ber starfsmönnum vinnuskólans skilyrðislaust að nota og flokkstjórar fylgja því eftir.

2. Reykingar, munn-og neftóbaksnotkun og önnur vímuefnanotkun er stranglega bönnuð á vinnutímum, þ.m.t. rafrettur. Þetta á við um alla starfsmenn vinnuskólans.

3. Notkun GSM síma (SMS, netnotkun eða hringingar) á meðan vinnu stendur er bönnuð. Ef þáttakandi þarf nauðsynlega að hringja er hægt að biðja um leyfi hjá verkstjóra/ flokkstjórum.

4. Notkun heyrnatóla í öðru eyra er leyfð í vinnuskólanum svo lengi sem það komi ekki niður á vinnu starfsmanns eða öryggi.

5. Engin ábyrgð er tekin á fötum starfsmanna, reiðhjólum, farsímum eða öðrum hlutum sem þeir hugsanlega taka með sér á vinnustað.

6. Sýna verður flokkstjórum og öðrum kurteisi og virðingu.

Almennar kröfur til starfsmanna vinnuskólans og viðurlög við brotum

1. Einelti eða hvers lags stríðni er ekki liðin í vinnuskólanum.

2. Ætlast er til þess að nemendur taki við hverju verkefni sem þeim er úthlutað og vinni það vel af hendi, þó svo verkefnið sé ekki á þeirra áhugasviði.

3. Nemendur skulu ávallt fara vel með öll verkfæri vinnuskólans og bera virðingu fyrir eigum annarra.

4. Ef nemandi mætir of seint, eða þarf að fara af einhverjum ástæðum, skal foreldri/ forráðamaður láta verkstjóra/ flokkstjóra vita.

5. Flokkstjórar áskilja sér þann rétt að ef nemendur fari ekki eftir ofangreindum reglum megi þeir senda viðkomandi starfsmann vinnuskólans launalausan heim að höfðu samráði við yfirmann vinnuskólans. Öll slík tilvik ber að tilkynna til forráðamanna viðkomandi. Við síendurtekin brot getur viðkomandi starfsmanni vinnuskólans verið vikið alfarið úr starfi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?