Menningarverkefnið Raddir úr Rangárþingi hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar á dögunum.
Menningarverkefnið Raddir úr Rangárþingi hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar á dögunum.

Stofnaður hefur verið menningarsjóður Rangárþings ytra en markmið sjóðsins er að efla og styrkja menningarstarf í sveitarfélaginu. 

Umsóknarfrestur er til 31. maí, úthlutað verður í júní.

Til úthlutunar í fyrri úthlutun ársins eru allt að 250.000 kr. 

Umsækjendur geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í Rangárþingi ytra. Verkefni sem styrkt eru verða að fara fram innan sveitarfélagsins. Jafnréttis-, atvinnu- og menningarmálanefnd metur hvaða verkefni eru styrkhæf.

Með umsókninni skal fylgja lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, fjárhagsáætlun og upplýsingum um viðkomandi umsóknaraðila.

Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Rangárþings ytra.

Sækja um

Fyrirspurnir vegna Menningarsjóðs sendist á markaðs- og kynningarfulltrúa, Eirík Vilhelm Sigurðarson á netfangið eirikur@ry.is eða í s: 4887000

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?