06. nóvember 2025
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd óskar eftir tilnefningum um samborgara Rangárþings ytra 2025.
Samborgari getur verið hver sá sem hefur á einhvern hátt þótt skara fram úr með störfum sínum í sveitarfélaginu, hvort heldur sem er í atvinnu- eða félagslífi, með manngæsku, dugnaði eða öðru sem eftirtekt hefur vakið.
Reglur um val á samborgara Rangárþings ytra má finna með því að smella hér.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 30. nóvember 2025 og hægt er að senda tilnefningu með því að smella hér og fylla út eyðublaðið.