Skipulagsmál til kynningar

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Landmannahellir, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.3.2022 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Landmannahelli, dags. 22.12.2010. Gert er ráð fyrir staðsetningu tjaldsvæðis á bökkum Helliskvíslar ásamt tjaldsvæði á efra svæðinu og bílastæðum tengdum þeim, lóðamörkum einstakra lóða breytt og lóðir stækkaðar. Jafnframt er gert ráð fyrir þjónustuhúsi á einni lóðinni. Aðkoma að svæðinu er af F26 Landvegi og um F225 Landmannaleið.

Uppdrátt má nálgast hér

Greinargerð má nálgast hér

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. maí 2022

 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?