Slagkraftur - ferðaþjónusta í Rangárþingi ytra
Atvinnu- og menningarmálanefnd Rangárþings ytra boðar til fundar með ferðaþjónustuaðilum í sveitarfélaginu mánudaginn 25. janúar kl. 17:00 í gegnum ZOOM fjarfund.
 
Tilgangur fundarins er að fara yfir stöðu ferðaþjónustu í sveitarfélaginu ásamt því að fara yfir þau verkefni sem í gangi eru eða eru að fara í gang á vegum sveitarfélagsins tengd ferðaþjónustu.
 
Gott er að þátttakendur skrái sig á fundinn. Skráning fer fram hér.
https://www.ry.is/is/mannlif/menning-og-listir/slagkraftur
 
Sjáumst vonandi sem flest!
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?