Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Breyting á aðalskipulagi ásamt tillögu að deiliskipulagi eru hér auglýstar samhliða.

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Norður Nýibær. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.1.2026 tillögu að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Norður Nýjabæ þar sem fyrirhugað er að núverandi landbúnaðarsvæði verði breytt í íbúðarsvæði að hluta. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Breyting á aðalskipulagi ásamt tillögu að deiliskipulagi eru hér auglýstar samhliða.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

Norður Nýibær, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.1.2026 að auglýsa tillögu að diliskipulagi fyrir hluta úr Nórður Nýjabæ. Lögð er fram tillaða deiliskipulagi fyrir hluta úr jörðinni, Norður Nýjabæ. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis að auki á sérlóð næst aðkomu inná svæðið. Breyting á aðalskipulagi ásamt tillögu að deiliskipulagi eru hér auglýstar samhliða.

Uppdrátt skipulagsins má nálgast hér. 

Greinargerð skipulagsins má nálgast hér. 

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 25.2.2026

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra