Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Faxaflatir. Breyting í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.3.2026 að gerðar yrðu breytingar á texta greinargerðar í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem nýtingarhlutfall fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ22 verði 0,15-0,7 og heimild sett inn til byggingar kjallara. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi (1) um Faxaflatir.

Nálgast má skipulagsgögn hér. 

 

Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 1. apríl nk.

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra