Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi

Sigöldugljúfur. Deiliskipulag.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 að kynnt yrði lýsing skipulagsáforma að deiliskipulagi fyrir Sigöldugljúfur. Með fjölgun ferðamanna við Sigöldugljúfur hefur myndast þörf fyrir skipulagða stíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Gert verði ráð fyrir endurbættri aðkomu að svæðinu, auk uppbyggingar á útsýnisstöðum á gljúfurbarmi. Jafnfram verði gert ráð fyrir salernisaðstöðu við bílastæði. Aðkoma að svæðinu er af Fjallabaksleið nyrðri.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Frestur til að skila inn athugasemdum við lýsinguna er til 6. maí 2026

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

 

Aldamótaskógur við Hellu, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 að auglýsa tillögu að diliskipulagi fyrir Aldamótaskóg með tengingu við Melaskóg. Svæðið er hugsað til almennrar útivistar og snýst deiliskipulagið um að skipuleggja fjölbreyttar útivistarleiðir og áningarstaði með áherslu á útsýni, gróður og náttúrutengsl. En einnig tryggja íbúum og almenningi góðu aðgengi að útivistarsvæði sem er aðgengilegt fyrir ólíka notendahópa allt árið um kring. Núverandi aðkoma er af Suðurlandsvegi rétt vestan við vegamót Rangárvallavegar en með nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir að aðkoma verði af fyrirhuguðu hringtorgi á Suðurlandsvegi í austurmörkum þéttbýlisins á Hellu auk aðkomu gegnum íbúðabyggðina að Gaddstöðum.

Uppdrætti skipulags má nálgast hér. 

Greinargerð skipulags má ánlgast hér. 

Tillagan og lýsingin liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum við tillöguna er til 3. júní 2026

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra