Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Öldur III, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 29.4. 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Öldur III á Hellu. Tillagan tekur til breytinga á byggingartegundum og heimild til byggingar tveggja hæða fjölbýlishúsa, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang, Ofanbyggðaveginn.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Hvammur L165091, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 29.4. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvamm L165091. Afmarkaðir verða tveir byggingareitir þar sem heimilt verði að byggja fjóra 40 m² gistiskála til útleigu auk, aðstöðuhúss og 100 m² starfsmannahúss og allt að 2400 m² geymsluhúsnæði. Einnig verða afmarkaðar og stofnaðar tvær nýjar lóðir innan jarðarinnar, önnur undir íbúðarhús allt að 300 m²og hin fyrir núverandi geymsluhúsnæði með möguleika á stækkun upp í allt að 8209,5 m². Aðkoma að svæðinu er af Hagabraut (286).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 10. júní 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra