Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Svínhagi 2, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13.5.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Svínhaga 2. Markmið lóðareiganda er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina. Aðkoma að svæðinu er af Þingskálavegi um veg innan svæðis.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Austvaðsholt 2, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13.5.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Austvaðsholt 2. Í undirbúningi er bygging á nýju íbúðarhúsi á jörðinni og er ætlunin að skipta út landskika fyrir það þar sem unnt væri að byggja íbúðarhús,bílskúr, skemmu, gestahús, gróðurhús og etv. hús til útleigu fyrir ferðamenn í samræmi við gildandi ákvæði aðalskipulags. Eigendur jarðarinnar ætla að búa áfram í húsi þeirra á jörðinni en vilja útbúa lóð fyrir það og geta byggt gróðurhús og skemmu ásamt gestahúsi. Aðkoma að svæðinu er af Bjallavegi (272).
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Eystra-Fjallaland, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13.5.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Eystra-Fjallaland. Deiliskipulagið nær yfir 49.260 m2 svæði í landi Leirubakka 2 en fyrirhugað er að hafa þar 52 frístundalóðir. Heimilt er að reisa frístundahús, aukahús/gestahús og geymslu á lóðunum með nýtingarhlutfallið 0,03 þ.e. 300 m2 á hverri 10.000 m2 lóð. Aðkoma að svæðinu er af Landvegi um veginn að Réttarnesi. Flóttaleið er skilgreind gegnum land leirubakka inn á Landveginn.
Uppdrátt skipulagsins má nálgast hér
Greinargerð skipulagsins má nálgast hér.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. júlí 2026.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra