Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Breyting á mörkum sveitarfélaganna Rangárþings eystra og ytra við Þverá.
Sveitarfélögin Rangárþing ytra og eystra leggja fram tillögu að samræmingu á sveitarfélagamörkum frá Uxahrygg í austri að Eystri Rangá í vestri. Fylgt verður eignarlínum lóða og jarða. Lóðamörk einstakra svæða breytast ekki. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 14.1.2026.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Skýringaruppdrátt má nálgast hér.
Oddspartur, breyting í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti óverulega breytingu á texta í greinargerð aðalskipulagsins fyrir Oddspart í Þykkvabæ. Breytingin fellst í að skýra betur breytingu aðalskipulags sem unnin var og samþykkt 10 júní 2025. Heildar byggingarmagn er aukið úr 1000 m2 í 1700 m2 auk þess sem skilmálum um dreifbýlisyfirbragð eru felldir út. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 27.5.2026.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Svínhagi Ás 8, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 23.9.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Svínhaga Ás 8. Innan byggingarreits verði heimilt að byggja 2 allt að 200m2 2ja hæða íbúðarhús, 2 allt að 150m2 2ja hæða frístunda-/gestahús auk annarra bygginga, m.a. til landbúnaðarnota. Hámarks heildar byggingarmagn er 2100m2. Aðkoma að svæðinu er af Þingskálavegi um Svínhagaveg (2753).
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Hagi lóð L192681, deiliskipulag
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 23.9.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Haga lóð L192681. Innan byggingarreits er sumarhús en að auki verði heimilt að byggja íbúðarhús og gestahús til útleigu. Aðkoma að svæðinu er af Hagabraut nr. 286.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. nóvember 2026.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra