Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022.

 

Þjónustusvæði austan Gaddstaðavegar, breyting á landnotkun

Sveitastjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gera breytingar á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022. Gert er ráð fyrir að hluta opins svæðis til sérstakra nota (O7) verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði með starfsemi tengdri ferðamennsku og þjónustu við ferðamenn ásamt því að nýtast íbúum. Áfram verður gert ráð fyrir mögulegum léttum hreinlegum iðnaði og annarri athafnastarfsemi í bland við verslunar- og þjónustusvæði, sérstaklega fjær Suðurlandsvegi. Samhliða breytist gatnakerfi, göngu- og reiðleiðir.

Tillöguna má nálgast hér:

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

Þjónustusvæði austan Gaddstaðavegar, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Tillagan byggir á breytingu á aðalskipulagi sem þegar hefur verið samþykkt í sveitarstjórn, er hér auglýst samhliða og bíður staðfestingar.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir ýmiskonar verslunar- og þjónustustarfsemi á u.þ.b. 7 ha svæði sunnan Suðurlandsvegar og austan Gaddstaðavegar á Hellu. Gert er ráð fyrir ýmiskonar þjónustu við ferðamenn sem og heimamenn. Þar á meðal eldsneytissölu, bílaþvottaplani, veitingasölu, bændamarkað, bíla- hjóla- og hestaleigu, hótelgistingu í smáhýsum (bungaló) og ýmiskonar verslun.

Tillöguna má nálgast hér:

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 22. desember 2016.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Har. Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?