Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022.

Uxahryggur I, Rangárþingi ytra, breyting á landnotkun

Sveitarfélagið vinnur að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022 í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til breyttrar landnotkunar. Um 3 ha svæði úr landi Uxahryggs I verði breytt úr landbúnaðarsvæði og verði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði eftir breytingu. Eftir breytingu verður texti í greinargerð svohljóðandi:

„VÞ14. Gert er ráð fyrir uppbyggingu í tengslum við ferðaþjónustu s.s. gistingu í gistiskálum / húsum. Byggingar verða á einni hæð. Stærð svæðis er um 3 ha.“

Tillöguna má nálgast hér.

Tillagan er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Kynningu lýkur föstudaginn 6. janúar 2017, klukkan 15.00

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?