13. janúar 2026
1. janúar 2026 tóku gildi nýjar reglur í Rangárþingi um styrk á móti fasteignaskatti fyrir fyrstu íbúðarkaupum einstaklinga.
Markmið reglnanna er að styðja við ungt fólk og aðra einstaklinga sem eru að kaupa sína fyrstu íbúðareign í Rangárþingi ytra. Með styrk á móti fasteignaskatti er stefnt að því að hvetja til búsetu í sveitarfélaginu og draga úr fjárhagslegri byrði fyrstu íbúðarkaupenda.
Gjaldgengir umsækjendur eiga rétt á styrk sem nemur 50% af fyrsta árgjaldi fasteignaskatts vegna tiltekinnar eignar, að því gefnu að öll skilyrði séu uppfyllt.
Reglur um styrk á móti fasteignaskatti fyrstu íbúðarkaupenda má skoða með því að smella hér.
Umsóknareyðublað um styrkinn má finna með því að smella hér.