F.v. Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra, Sólveig Stolzenwald, Unnur Þórðardóttir, Gunna…

Byggðasöguhringnum lokað á Hellu

Útgáfufögnuður bókarinnar Hella - þorp í þjóðbraut fór fram þann 15. september s.l.
readMoreNews
Grunnskólinn á Hellu fær afhentan Grænfánann í 6. sinn

Grunnskólinn á Hellu fær afhentan Grænfánann í 6. sinn

Í dag 16. september, á afmælisdegi Ómars Ragnarsson er dagur íslenskrar náttúru. Í tilefni þess fóru allir nemendur og starfsfólk skólans víðsvegar um Hellu til að tína rusl.
readMoreNews
Vetrarstarf Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu (FEBRANG) 2020-2021

Vetrarstarf Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu (FEBRANG) 2020-2021

Ýmislegt í boði svo flestir ættu að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera í vetur!
readMoreNews
Sigríður H. Heiðmundsdóttir formaður Skógræktarfélags Rangæinga við gróðursetningu á Geitasandi.

Gróðursetning á Geitasandi

Tilvalin fjáröflun fyrir íþróttafélög, kóra, björgunarsveitir eða aðra sem áhuga hafa. Greitt er fyrir hverja plöntu sem í jörð fer.
readMoreNews
Fundarboð - sveitarstjórn

Fundarboð - sveitarstjórn

25. fundur sveitarstjórnar Rangárþings ytra verður haldinn Frægarði - Gunnarsholti, 10. september 2020 og hefst kl. 16:00
readMoreNews
Nýja húsið er glæislegt að utan sem innan.

Ný slökkvistöð tekin í notkun á Hellu!

Brunavarnir Rangárvallasýslu hafa nú fært sig í nýtt og glæsilegt húsnæði að Dynskálum 49.
readMoreNews
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í seinni úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í seinni úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í seinni úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2020. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
readMoreNews
Hella - þorp í þjóðbraut eftir Ingibjörgu Ólafsdóttir

Hella - Þorp í þjóðbraut

Nú er hægt að panta bókina "Hella - þorp í þjóðbraut" sem Ingibjörg Ólafsdóttir hefur tekið saman en áætlað er að hún fari í sölu nú í lok september.
readMoreNews
Mynd frá gönguhóp á Gíslholtsfjalli í Lýðheilsugöngu 2018.

Lýðheilsugöngur í september!

Rangárþing ytra tekur þátt í lýðheilsugöngum Ferðafélags Íslands í september.
readMoreNews
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028. Minna Hof, breyting á landnotkun Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 20.7.2020 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir hluta úr landi Minna Hofs, þar sem hluti núverandi landbúnaðarsvæðis verði gert að íbúðabyggð. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Minna Hof, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.8.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Minna Hof samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið. Um er að ræða deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppbyggingu á alls 41 íbúðarhúsalóð. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Rangárvallavegi (nr. 264). Ármót, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.8.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði úr landi Ármóta. Um er að ræða deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppbyggingu gisti- og ferðaþjónustu á svæðinu. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Landeyjavegi (252). Marteinstunga tankur, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.4.2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð úr landi Marteinstungu. Samþykkt aftur á fundi 27.8.2020. Áformað er að byggja lítið dæluhús, hjá núverandi miðlunartanki hitaveitu til að auka þrýsting á hitaveitukerfi veitunnar. Gert er ráð fyrir að núverandi aðkoma frá Landvegi (26) verði nýtt með fyrirvara vegna aðkomu að vatnstanki og til einkanotkunar landeiganda og falli niður ef og þegar frekari áform um framkvæmdir liggja fyrir. Tillagan er hér endurauglýst vegna tímaákvæðis í skipulagslögum. Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 14. október 2020 Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is Har. Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra
readMoreNews