Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Aðkoma að landinu er frá Þingskálavegi (nr. 268) um aðkomuveg sem liggur vestan og samsíða Selsundslæk.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Lýsingarnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 27. febrúar nk.

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Ferjufit. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 vegna efnistökusvæðis E122 við Ferjufit á Þjórsáreyrum (L238022). Svæðið stækkar úr 2,0 ha í allt að 5,0 ha og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Tungnaáreyrar. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 að gerðar yrðu breytingar á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 vegna efnistökusvæðis E70 í Tungnaáreyrum (L229508). Með þessari breytingu er gert ráð fyrir stækkun svæðisins úr 2,5 ha í allt að 7,5 ha, þar sem heimiluð efnistaka eykst úr 50.000 m³ í allt að 100.000 m³.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Steinkusel. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 tillögu að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Steinkusel þar sem svæðið breytist úr frístundasvæði í íbúðasvæði. Aðkoma að svæðinu er frá Bjallavegi (282). Breyting á aðalskipulagi ásamt tillögu að deiliskipulagi eru hér auglýstar samhliða.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Hagi v/Selfjall 2. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 tillögu að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Haga v/Selfjall 2 þar sem svæðið breytist úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði. Aðkoma er af Hagabraut (286) og umferðarréttur til annarra lóð liggur í gegnum lóðina. Breyting á aðalskipulagi ásamt tillögu að deiliskipulagi eru hér auglýstar samhliða.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Hagi v/Selfjall 2, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 að auglýsa að nýju tillögu að diliskipulagi fyrir Haga v/Selfjall 2. Breyting á aðalskipulagi þar sem gerð var breyting á landnotkun er auglýst hér samhliða. Deiliskipulagið mun gera ráð fyrir byggingu íbúðarhúss til fastrar búsetu ásamt uppbyggingu lítilla gistiskála til útleigu. Aðkoma er af Hagabraut (286) og umferðarréttur til annarra lóða liggur í gegnum lóðina.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Steinkusel og fleiri lóðir. Bretying á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 11.2.2026 að auglýsa að nýju tillögu að diliskipulagi fyrir Steinkusel og fleiri lóðir þar sem landeigendur lóðanna Kúfholts 1 L165021, Kúfholts II L220223, Kúfholts III L220226, Kötlusels F3 L220224 og Fjallasels lóðar F4 L220225 hafa lagt fram tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðir sínar. Breytingarnar eru þannig að stærðir lóða breytast og lóðunum fjölgar í 8 landspildur (stærð lóða 0,5-1,0 ha.), heiti á lóðum breytast einnig (að hluta til). Byggingarreitir afmarkast 10m frá lóðamörkum. Af þeim sökum breytist landnotkun í íbúðabyggð. Aðkoma að svæðinu verður um Bjallaveg 272 og aðkomuveg innan svæðis.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. apríl 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra