Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Gaddstaðayja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6.2026 tillögu til auglýsingar að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Gaddstaðaeyja. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á landnotkun þar sem núverandi Óbyggt svæði verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í eyjunni. Deiliskipulagið er hér auglýst samhliða.

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

Greinargerð skipulagstillögu má nálgast hér. 

Gaddstaðaeyja, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 10.6. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Gaddstaðaeyju. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í eyjunni, í formi allt að 160 herbergja hótels með afþreyingu s.s. baðlóni, á suðurtanga eyjunnar, auk byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu inn af árbökkum norðurhluta eyjunnar. Smáhýsin munu tengjast rekstri hótelsins. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins verður hér auglýst samhliða þar sem landnotkun verður breytt úr óbyggðu svæði í landnotkun verslunar- og þjónustu. Aðkoma að svæðinu er af Rangárflötum.

Greinargerð má nálgast hér.

Uppdrætti má nálgast hér. 

Úttekt á fuglalífi má nálgast hér. 

Brunavarnir má nálgast hér. 

Fráveitumál má nálgast hér. 

Fosrnleifaskráningu má nálgast hér. 

 

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. ágúst 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra