Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra 

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun

Urðir í Landsveit, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur heimilað gerð deiliskipulags fyrir spilduna Urðir í Landsveit í Rangárþing ytra. Skipulagssvæðið er um 6 ha og er gerir deiliskipulagið ráð fyrir lóðum fyrir 6 frístundahús. Eitt frístundahús er byggt.

Tillöguna má nálgast hér og hér.

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. nóvember 2018.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is 
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?