Sumarhreinsun fyrir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu dagana 22. maí til 25. júní 2020
12. maí 2020
Sóknarfæri ferðaþjónustunnar
Sóknarfæri ferðaþjónustunnar er áhersluverkefni á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og nýr samkeppnissjóður Sóknaráætlunar Suðurlands vegna COVID 19. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja verkefni starfandi ferðaþjónustufyrirtækja og fyrirtækja sem hafa megin tekjur sínar af ferðamönnum og ferðaþjónustu.
07. maí 2020
Matjurtagarðar til afnota fyrir íbúa Rangárþings ytra
Rangárþing ytra vill vekja athygli á að austan megin við Síkið við Gunnarsholtsveg geta áhugasamir íbúar sér að kostnaðarlausu afmarkað sér reit og ræktað grænmeti. Sveitarfélagið sér um tætingu reitanna.
06. maí 2020
Heitavatnslaust í Rangárveitum mánudaginn 4. maí kl. 14:00-18:00
Tilkynning frá Veitum
Vegna bilunar verður heitavatnslaust frá Laugalandi og austur fyrir Hvolsvöll í dag frá klukkan 14:00 til klukkan 18:00.
04. maí 2020
Yfirlit yfir þjónustu stofnana sveitarfélagsins frá og með 4. maí 2020
Stefnt er að afléttingu samkomubanns í áföngum frá og með 4. maí í samræmi við auglýsingu Heilbrigðisráðherra frá 21. Apríl 2020. Áfram gilda takmarkanir um hámark 50 manna samkomur og 2 metra öryggisfjarlægð milli fólks. Þá er áfram lögð áhersla á að fylgja reglum um handþvott og sótthreinsanir til að lágmarka smithættu.
03. maí 2020
Óskað eftir sérkennslustjóra, leikskólakennurum og deildastjórum
Auglýst er eftir sérkennslustjóra, leikskólakennurum og deildastjórum til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra sem er um 100 km frá Reykjavík.
29. apríl 2020
Fundarboð - Byggðarráð
23. fundur byggðarráðs Rangárþings ytra verður haldinn 30. apríl 2020 og hefst kl. 16:00
28. apríl 2020
Kynningarfundur - Sóknarfæri ferðaþjónustunnar á Suðurlandi
Verkefnið Sóknarfæri ferðaþjónustunnar er þríþætt og felur í sér markaðsátak fyrir Suðurland gagnvart innlendum ferðamönnum í sumar, úthlutun verkefnastyrkja til ferðaþjónustufyrirtækja sem og sérhæfð ráðgjöf og fræðsluverkefni til stuðnings atvinnulífinu.
28. apríl 2020
Skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga – umsóknir
Umsækjendur um stöðu skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga bs. voru 8 talsins en umsóknarfrestur rann út um miðjan apríl. Verið er að vinna úr umsóknum og umsækjendur hafa verið boðaðir í viðtöl í þessari viku.
27. apríl 2020
Rangárþing ytra plokkar!
Rangárþing ytra hvetur til þátttöku í stóra plokkdeginum laugardaginn 25. Apríl – á degi umhverfisins. Laugardaginn 25. apríl 2020 frá kl. 10-12 verður hægt að nálgast poka til ruslatínslu hjá þjónustumiðstöð sveitarfélagsins við Eyjarsand 9 á Hellu.