Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.

Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 15.4.2026 tillögu til auglýsingar að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Svínhaga L7 og L8A. Breytingin nær til hluta úr jörðinni Þjóðólfshaga 1 þar sem áform eru uppi um rekstur gistiþjónustu í allt að 50 gistiskálum fyrir allt að 100 manns. Breyting á landnotkun verður úr landbúnanaðarnotum í Verslun- og þjónustu. Deiliskipulagið er hér auglýst samhliða.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

Ægissíða 3 lóð 3, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Ægissíðu 3 lóð 3. Gert verði ráð fyrir byggingu þriggja íbúðarhús, fimm gestahúsa, geymslu og skemmu. Aðkoma að svæðinu er af Bugavegi (273).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Kró, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Kró. Áformað er að byggja hús, geymslu/gestahús og skemmu á landinu. Áfram verður landbúnaður, eða einhvers konar ræktun. Skipulagssvæðið mun ná yfir hluta af landinu og mun aðkoman vera af vegslóða sem liggur meðfram Hólsá. Gerðir verða tveir byggingarreitir, annar fyrir allt að 150 m² hús og allt að 50 m² geymslu/gestahús og hinn byggingarreiturinn fyrir allt að 400 m² skemmu. Aðkoma að svæðinu er um vegslóða sem liggur frá Þykkvabæjarvegi (nr. 25) og með fram Hólsá.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Rangárbakki 8, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Rangárbakka 8. Fyrir á svæðinu eru þjónustuhús á einni hæð og lítið geymsluhús á reit E. Á reit B eru tvö salernishús ásamt 6 litlum gistihúsum á einni hæð. Á reit C eru 4 lítil gistihús á einni hæð. Deiliskipulagsbreytingin nær til verslunar og þjónustulóðar Árhús. Á landinu eru í dag skráðar 3 lóðir L164952, L221343 og L221344. Breytingin felur í sér að hætt verið við byggingu gistihúss ásamt tengibyggingu á reit E. Fjölgun verði á gistihúsum á reit A og reit D ásamt nýju salernihúsi á reit G. Byggt verður starfsmannahús á einni hæð sem kemur á reit F. Byggt verður nýtt hótel á reit E og nýtt lúxushótel á reit I. Á reit H verður byggt baðlón. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Sigöldugljúfur, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Sigöldugljúfur. Markmið deiliskipulagsins er að draga úr raski á viðkvæmum gróðri á svæðinu auk þess að bæta öryggi ferðamanna og þjónustu við þá. Þetta er gert með því að skipuleggja uppbyggingu svæðisins en gert er ráð fyrir að staðsetja þrjá útsýnispalla, lítið aðstöðuhús með þurrsalernum, bílastæði og stígatengingar þarna á milli. Aðkoma að svæðinu er af Nyrðri Fjallabaksleið.

Uppdrátt má nálgast hér. 

Greinargerð má nálgast hér. 

 

Hvammsvirkjun, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun. Helstu breytingar á gildandi deiliskipulagi síðan í desember 2021 eru eftirfarandi: Nákvæm afmörkun Hagalóns liggur fyrir og er því breytt lítillega, stærð lóns þó lítt breytt., Felld er út afmörkun efnistökusvæða í Hagalóni sem fara undir vatn að framkvæmdum loknum. Efnistaka úr lónsstæðinu er heimil., Efnislosunarsvæði við Ölmóðsey minnkar og vegur þangað breytist vegna minja., Legu Þjórsárdalsvegar er breytt ásamt reiðleið með honum, heimiluð eru undirgöng undir veginn., Settur er inn áningarstaður við Hagalón. Heimilaður er annar tímabundinn áningarstaður á framkvæmdatíma., Legu vega innan svæðis er breytt lítillega og einhverjir vegir breytast úr vinnuvegi í varanlegan veg. Bætt er inn vegi að tengivirki., Reiðvegir um svæðið breytast., Legu háspennulína og rafstrengja er breytt lítillega. Á uppdrætti er felld út tímabundin færsla háspennulínu en færslan áfram heimil á framkvæmdatíma., Nýr vatnstankur bætist við., Legu nokkurra vinnuvega er breytt lítillega., Sveitarfélagamörk eru leiðrétt til samræmis við breytingu í aðalskipulagi., Afmarkaðar eru lóðir og byggingarreitir fyrir stíflur., Lóð stöðvarhúss/stíflu er stækkuð að sveitarfélagamörkum í Þjórsá. Að öðru leyti en því sem kemur fram hér að aftan gilda skilmálar eldra deiliskipulags.

Greinargerð má nálgast hér

Uppdrátt má nálgast hér. 

Uppdrátt má nálgast hér. 

Uppdrátt má nálgast hér. 

Uppdrátt má nálgast hér. 

 

Svínhagi L7 og L8A, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 27.5. 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Svínhaga L7 og L8A. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 gesti í allt að 50 gistihúsum, auk þjónustuhúss sem einnig er hugsað fyrir starfsmannaaðstöðu/íbúðir, verslun og sölu einfalda veitinga. Einnig er heimilt er að gera baðlaug og aðra afþreyingu fyrir gesti. Heildarbyggingarmagn beggja lóða skal ekki fara yfir 2.000 m². Aðkoma að svæðinu er af Þingskálavegi um veg innan svæðis. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi, þar sem núverandi landbúnaðarsvæði verður breytt í Verslun- og þjónustu er hér auglýst samhliða.

Greinargerð má nálgast hér. 

Uppdrátt má nálgast hér. 

 

Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 15. júlí 2026.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra