Fundir vegna nágrannavörslu
Til stendur að koma á fót nágrannavörslu á Hellu ef áhugi íbúa er fyrir hendi. Fundir verða haldnir í Grunnskólanum á Hellu og munu taka um eina og hálfa klukkustund. Skipt verður niður eftir litahverfum. Gula og rauða hverfið kl. 17.30 og græna hverfið kl. 19.30 á fimmtudaginn 31. janúar og fyrirtæki og stofnanir og bláa hverfið funda þann 7. febrúar.
30. janúar 2013