DVD-diskur um Laufaleitir á Rangárvallaafrétti
Guðmundur Árnason, sem er fæddur og uppalinn á Hellu, hefur gefið út glæsilegan DVD-disk um Laufaleitir á Rangárvallaafrétti en hann fylgdi fjallmönnum á afréttinum í viku haustið 2012 og festi allt á filmu. Í myndinni er farið um eitt fegursta hálendi Íslands í Rangárþingi ytra og liggja m.a. tvær þekktar gönguleiðir um þennan afrétt Rangvellinga en það eru Laugavegur og Strútsstígur.
18. september 2013