Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra (Sett inn 28.3.2025). 

Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis:

Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti, Rangárþingi ytra, Framkvæmdaleyfi

Vegagerðin hefur skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæðum reglugerðar nr. 772/2012 með síðari breytingum sótt um framkvæmdaleyfi vegna endurbóta og styrkinga auk lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti, Rangárþingi ytra. Álit Skipulagsstofnunar frá 2. ágúst 2024 liggur fyrir þar sem viðkomandi framkvæmd skal ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að gefið yrði út framkvæmdaleyfi með þeim skilyrðum sem fram koma í gögnum málsins og skilgreind eru í fylgiskjölum með framkvæmdaleyfinu. Framkvæmdaleyfið var gefið út þann 27. mars 2025 og var í kjölfarið birt í Skipulagsgátt því til staðfestingar.

Ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður, sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011.

Útgefið framkvæmdaleyfi má nálgast hér. 

Framkvæmdaleyfi ásamt öllum fylgigögnum liggur frammi á skrifstofu Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Hrafnaskjól og Kaldakinn 2, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir úr Köldukinn L227521, Hrafnaskjól, Köldukinn 2 og Köldukinn 2C. Á Hrafnaskjóli verði gert ráð fyrir byggingu allt að 5 gistiskála fyrir allt að 10 gesti, einbýlishúsi, þjónustuaðstöðu og samkomusal. Á Köldukinn 2 og 2C verði gert ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, skemmu og gestahúsi á hvorri lóð. Aðkoma er af Árbæjarvegi (271).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Lunansholt 2, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Lunansholt 2 land 1. Gert verði ráð fyrir byggingarreit fyrir íbúðarhús, 3 gestahús og skemmu. Aðkoma er af Landvegi (26).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Rangárbakkar 8, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Rangárbakka 8a, 8b og 8c dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Aðkoma að svæðinu er af Suðurlandsvegi um hringtorg á Hellu og um Rangárbakka.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Dynskálar 40-50, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Dynskála 40-50 á Hellu. Fyrirhugað er stækkun á mannvirkjum á lóð sláturhúss Reykjagarðs þar sem m.a. er gert ráð fyrir, aukinni athafnastarfsemi vegna slátrunar hænsnfugla og framleiðslu matvæla til neytenda og framleiðslueldhúsi, s.s. til eldunar og framleiðslu máltíða fyrir mötuneyti, skóla, heimaþjónustu, o.þ.h. Einnig er nr. lóð 50 skipt upp, á nýrri lóð er heimild til uppbyggingar atvinnuhúsnæðis til hreinlegrar starfsemi s.s. í matvælaiðnaði.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Birkivellir, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóð úr landi Grenja, Birkivelli. Lóðinni verði skipt í tvær lóðir. Með breytingunni myndi lóðin Birkivellir (L226586) minnka niður í 5000 m2 og fá staðfangið Birkivellir 2. Skilgreind yrði ný 11,2 ha lóð sem fengi staðfangið Birkivellir og fengi hún nýtt landnúmer. Byggingarheimildir eru uppfærðar fyrir nýja lóð þar sem heimilt yrði að byggja íbúðarhús m bílskúr ásamt gestahúsi og skemmu. Upprunalóðin hefði heimild til að allt að 150 m². Aðkoma er af Landvegi (26) og um veg innan Grenja.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Ármót, Rangárþingi ytra, breyting og niðurfelling á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Ármót. Gildandi deiliskipulag tekur til um 40 ha af landi Ármóts. Skipulagssvæðið skiptist í tvo hluta, annan neðan (suðaustan) Landeyjavegar en hitt ofan (norðvestan) við veginn, þar sem bærinn Ármót stendur. Gerð er breyting á deiliskipulagi þar sem hluti skipulags neðan (sauðaustan) við Landeyjarveg verður fellt út af skipulagi. Gerð er breyting á afmörkum og byggingarskilmálum fyrir byggingarreit B5. Reitur var áður afmarkaður fyrir íbúðarhús en með breytingunni verður skilgreind uppbygging á ferðaþjónustu. Samhliða breytingu deiliskipulagsins fyrir Ármót er unnið að nýju deiliskipulagi fyrir neðra svæðið, Fróðhjoltshjáleiga. Aðkoma er frá Landeyjavegi (252).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Fróðholtshjáleiga, Rangárþingi ytra, breyting og niðurfelling á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæði úr Fróðholtshjáleigu. Gert verði ráð fyrir byggingu íbúðarhúsa og sumarhúsa ásamt geymslum og skemmum auk útihúsa á 6 lóðum. Um er að ræða skipulag sem var áður hluti af deiliskipulagi fyrir Ármót en hefur verið fellt út og gert að sérstöku skipulagi. Aðkoma er frá Landeyjavegi (252).

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Skólasvæðið á Hellu, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir skólasvæðið á Hellu, dags. 31.1.2023. Breytingin felur í sér að í stað sex 9,5 metra hárra ljósmastra er óskað eftir að fá að koma fyrir fjórum 21 metra háum ljósmöstrum. Með því að hækka möstrin verður lýsingin nákvæmari og varnar glýju í nágrenninu. Tillagan verður einnig kynnt á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins.

Skipulagstillögu má nálgast hér. 

Sneiðingu má nálgast hér. 

 

Galtalækjarskógur, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Galtalækjarskóg og Merkihvol land. Gert er ráð fyrir eftirfarandi uppbyggingu innan svæðis: Reitir F43 og F82, Frístundasvæði: 51 frístundalóðir 0,2-0,5 ha að stærð. Gert verði ráð að byggð verði sumarhús, gestahús og geymsla á hverri lóð, stærðir skv. nýtingarhlutfalli. Reitur VÞ7, Verslunar- og þjónustusvæði: Heimild er fyrir allt að 170 gistipláss, þ.e. í núverandi gistihúsi í Lönguhlíð auk hótels og lítilla gistiskála. Gert verði ráð fyrir að Opið svæði, OP1, haldist óbreytt og óraskað. Gert verði ráð fyrir tveimur leiksvæðum með tækjum og útivistaraðsöðu. Aðkoma að svæðinu verður með tvennum hætti. Annars vegar frá núv. aðkomuvegi frá Landvegi og leiðir hún að frístundabyggðum og þjónustumiðstöð við Merkihvol. Ný aðkoma mun leiða frá Landvegi og að gistihúsi / hóteli við Lönguhlíð og smáhýsum.

Uppdrátt skipulagsins má nálgast hér. 

Greinargerð má nálgast hér. 

 

Fraxaflatir á Hellu, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Faxaflatir, þar sem lóð er bætt við á vestanverðu svæðinu. Lóðin fengi staðfangið Faxaflatir 2a og yrði 9.158 m². Á lóðinni er heimilt að reisa blandað skrifstofu og lagerhúsnæði á einni til tveimur hæðum.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Bjargshverfi, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi vegna nýs íbúðarhverfis í Bjargshverfi. Gert verði ráð fyrir allt að 100 íbúðareiningum í mismunandi tegundum húsa, einbýlis, par- og raðhúsum. Gerð verði grein fyrir tengingum við aðra vegi og samgöngum innan svæðisins. Tengsl við þéttbýlið austan Ytri-Rangár gerð skil með áformuðum göngubrúm og göngustígum. Aðkoma að svæðinu er frá Árbæjarvegi (271).

Uppdrátt skipulagsins má nálgast hér

Greinargerð má nálgast hér. 

 

Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing skipulagsáforma að hverfisskipulagi

Hella. Hverfisskipulag elsta hluta Helluþorps

Byggðaráð í umboði Sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 26.3.2025 að kynnt yrði lýsing skipulagsáforma vegna vinnu við hverfisskipulag fyrir elsta bæjarhluta Hellu. Um er að ræða svæði sem afmarkast af Leikskálum til suðurs, Ytri-Rangá til vesturs, lóðum við Ártún og Nestún til norðurs og lóðum við Hólavang til austurs. Hverfisskipulagið nær til elsta bæjarhluta Hellu en innan skipulagssvæðisins eru um 42 lóðir og eru flestar þeirra nú þegar byggðar.

Lýsingu skipulagsáforma má nálagst hér. 

 

Tillögurnar og lýsingin liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 14. maí 2025.

 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra