13. fundur sveitarstjórnar Rangárþings ytra verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, miðvikudaginn 13. maí 2015 og hefst kl. 15:00
11. maí 2015
Kvennakórinn Ljósbrá fagnar 25 ára afmæli sínu
Kvennakórinn Ljósbrá heldur tvenna tónleika og fagnar um leið 25 ára afmæli sínu. Fyrri tónleikarnir verða í Hvoli Hvolsvelli föstudagskvöldið 8. maí og hefjast kl. 20:00. Seinni tónleikarnir verða haldnir í Áskirkju Reykjavík laugardaginn 9. maí kl. 16:00.
06. maí 2015
Sameiginlegur opinn íbúafundur Rangárþings ytra og Ásahrepps
Sameiginlegur opinn íbúafundur Ásahrepps og Rangárþings ytra verður haldinn á Laugalandi n.k. laugardag, 9. maí frá kl. 11:00-14:00
05. maí 2015
Viljayfirlýsing undirrituð
Rangárþing ytra, EAB New Energy GmbH og EAB Ný orka ehf undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf á sviði vindorkunýtingar.
30. apríl 2015
Ferðamenn í Rangárþingi ytra
"Rangárvallasýsla býður upp á ótrúlega möguleika í ferðaþjónustu" sagði Rögnvaldur Guðmundsson sérfræðingur í ferðamálum á fjölmennum fundi um málefni ferðaþjónustu í Rangárþingi ytra í Menningarhúsinu á Hellu í gær.
30. apríl 2015
Leikskólinn Heklukot auglýsir eftir leikskólakennurum
Lausar eru stöður leikskólakennara við leikskólann Heklukot.
Heklukot er þriggja deilda leikskóli með um 60 nemendur frá eins til fimm ára og er markvisst unnið eftir stefnu Grænfánans og Heilsustefnunnar. Í Heklukoti vinnur metnaðarfullt starfsfólk í fallegu héraði sem býður upp á marga möguleika.
29. apríl 2015
Laus staða skólastjóra
Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga auglýsir lausa stöðu skólastjóra við Tónlistarskóla Rangæinga frá og með 1. ágúst 2015. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2015. Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Sigurðsson formaður skólanefndar í s. 4887000 og agust@ry.is. Umsóknum skal skila með rafrænum hætti til agust@ry.is
28. apríl 2015
Leikskólinn Laugalandi leitar að leikskólakennurum
Leikskólinn Laugalandi leitar eftir áhugasömum, metnaðarfullum leikskólakennurum (eða öðru uppeldismenntuðu fólki) til starfa.
28. apríl 2015
Hárrétt viðbrögð
Hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða á Hellu urðu konu til lífs. „Þetta er afrek,“ segir Þórhallur Svavarsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, en hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða urðu konu til lífs sem missti meðvitund í sundlauginni á Hellu á laugardag.
27. apríl 2015
Fundarboð sveitarstjórnar
12. fundur sveitarstjórnar Rangárþings ytra verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, miðvikudaginn 29. apríl 2015 og hefst kl. 15:00